Saga Musica var einstakt verkefni og hugarfóstur Valgeirs Guðjónssonar, tónlistarmanns, en við unnum saman á tímabili sem endaði með Saga Musica.
Sagnatónverkið var frumflutt 17. júní 2022 og var ég meðhöfundur. Ég hannaði tónleikana frá grunni: Valdi 15 lög úr 40-laga safni; raðaði lögunum upp og spann úr þeim söguþráð; og skrifaði 13 örsögur sem saman mynda eina heild. Þetta fór allt í afar veglega tónleikaskrá sem ég myndskreytti og hannaði sjálfur frá upphafi til prentunar. Hér eru nokkrar af teikningunum úr tónleikaskránni.
Back to Top