Ég byrjaði að teikna fyrir Dýraríkið árið 2019 og var þá beðinn um að hanna einkennandi lukkudýr fyrir hvern verslunarflokk - sem eru hundar, kettir, fuglar, fiskar, og nagdýr - og koma þeim fyrir á gamla lógóinu. 
Næstu ár teiknaði ég af og til nýjar myndir af dýrunum sem voru notaðar við hin og þessi tækifæri. Árið 2023 var ákveðið að taka vefverslunina í gegn og byggja upp frá grunni. Þá var ég beðinn um að teikna sér myndir fyrir nýju vefsíðuna og kom þá í ljós mikil stílbreyting á lukkudýrunum. Þótti þessi breyting til bóta, svo að árið eftir var ég beðinn um að uppfæra lógóið með nýja stílnum.
Myndirnar eru í öfugri tímaröð.
Back to Top